Leita í fréttum mbl.is

Hélt í alvöru...

... að ég væri búin að finna blogggírinn aftur eftir frekar dræmt bloggár síðasta ár. En hef þá sennilega bara tínt honum aftur.

Er að klára jólafríið. Á morgun byrjar skólinn. Já það er ágætt að vera í skóla. En það verður víst nóg að gera í náminu.

En svona er nú bara lífið

Góðar stundir!


Sterkur forseti!

Já hann Ólafur okkar allra lætur ekki slá sig út af laginu. Gamli refurinn hefur engu gleymt og lætur ekki fréttahaukanna hrauna yfir sig.

Raunar er þessi umfjöllun bretanna mjög athyglisverð og segir meira en mörg orð.

Held samt ekki að hann hafi ekki verið í neinum kröppum dansi þarna. Hann einfaldlega rúllaði viðtalinu upp og lenti aldrei í neinum vandræðum með spurningar annars beitts spyrils.

 

 


mbl.is Ólafur í kröppum dansi á BBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held þeir ættu nú bara sjálfir að smakka...

...Hrefnukjötið! Leitun er að öðru eins lostdæti. Og matreiðslumöguleikarnir óþrótandi.

En hvað er eiginlega málið með þetta öfgafólk. Hefur það ekkért betra að gera en að trufla vinnandi fólk?

 


mbl.is Árekstur á hrefnumiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversdagurinn tekur við!

Já nú er að komast rútína á lífið hjá okkur öllum. Allt vitlaust út af Icesave, börnin byrjuð á leikskólanum og ég byrjuð að undirbúa skólann. Byrja reyndar ekki fyrr en í næstu viku, en þar samt örlítin undirbúning. Þarf t.d. að lesa heila bók fyrir þriðjudaginn. Svona er þetta bara.

Dæturnar fóru á leikskólann í morgun. Í fyrsta skipti síðan fyrir jól. Voru mjög þreyttar í morgun en líka mjög spenntar. 

Frostið bítur mann þessa dagfanna.  - 11 gráðu frost þegar við hjónin vorum á ferðinni í morgun. Um tvöleytið hafði það að vísu mikið minnkað. En það er samt kalt.

Ég er nú ekkért að missa mig við forseta vorn í dag eins og svo margir aðrir. Verð bara að sætta mig við að Icesave umræðan heldur áfram um sinn.  Svona er þetta bara.

Heil og sæl!  


Laugardagsbítúrinn...

... var niður í Bakkafjöru að skoða hina nýju Landeyjahöfn. Tveir bílar með annars vegar okkur hjónum og dætrum okkar og hins vegar foreldrum mínum og bræðrum. Sáum fullt af grjóti, stóru grjóti. Mikið er nú búið þarna, en líka mikið eftir. Nú fyrst áttaði maður sig á því hvað er stutt til Vestmannaeyja. Fórum líka upp í námuna. Hún er stór, risastór. En samt virðist vera til nóg af grjóti. Það er í rauninni alveg ótrúlegt hverju mannskeppnan fær áorkað.

Bakkahöfn o.fl. 009

Svona sér maður Vestmannaeyjar úr fjörunni.

Bakkahöfn o.fl. 014

Búkollurnar eru nú engar smásmíðar.

Bakkahöfn o.fl. 015

Komin upp í námuna á Hamragarðaheiði

Bakkahöfn o.fl. 016

Bíll pabba í hluta af námunni (einu horninu)

 

Góðar stundir!


2010

 2010-roth-ira-conversion-rules-limits

Árið byrjar ágætlega. Þessi fyrsti dagur ársins bara svona venjulegur.

Horfði á skaupið og fannst það gott. Flugeldasýninginn á Selfossi var mögnuð, stóð fyrir sínu. Fólk fór satt, sælt og ánægt inn í áramótin.

Og svo er bara að vona að það megi vera svoleiðis áfram.

Góðar stundir!

 


Áramót

Gleðilegt ár 2010

Takk fyrir árið 2009

happy-new-year05


Ég spyr...

hvað sé eðlilegt við það að 28 ára maður í blóma lífsins bara deyji.

,,Sullivan er sagður hafa látist af eðlilegum orsökum" segir í fréttinni. Fyrir mér er það ekki eðlilegt að svona ungur maður látist. Þó svo það sé í raun alger óþarfi að vera að velta sér eitthvað upp úr láti aumngja mannsins, þá finnst mér þetta einstaklega klaufalega orðað hjá mbl.is.

Lát svo ungs manns er afar sorglegt en ekki hversdagslegur hlutur eins og skín í gegn í þessari frétt.

28 ára gamal maður deyr, og ekkért er eðlilegra.

 

Nei, maður spyr sig...

 

 


mbl.is The Rev látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá svona....

Gleðileg jól og gleðilegt ár!!!

Hef ekki verið nógu dugleg að blogga á árinu. Langar að bæta úr því á næsta ári. Við sjáum til. Maður verður jú mikið fyrir framan tölvuna.

En annars allt gott að frétta. Allir hressir og kátir um hátíðarnar, sáttir, saddir og sælir.

Lifið heil og góðar stundir.

SmileHeartSmileHeartSmileHeartSmile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband