Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hefðum gétað sleppt þessu kvöldi.

Það var svo augljóst fyrirfram að þetta lag yrði valiðl. Ég gét verið sammála mörgum um að þetta lag er ekki endilega besta lagið, en þetta er Júróvísíónlegasta lagið og það er það sem þjóðin spáir í. Persónulega fannst mér færeyingurinn Jógvan standa sig langbest allra flytendanna í kvöld og hefði hann orðið verðugur fulltrúi okkar íslendinga í keppninni, sem og fæeyinga.

En hver gat annars ekki séð þetta fyrir?

Nei, ég bara spyr. Whistling

 

 


mbl.is Hera Björk fulltrúi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forkunnarfagurt frímerki.

Segi ég og skrifa sem gamall frímerkjasafnari. Enda lundinn einkar fallegur fugl, og Eyjarnar fallegar líka.  Ekki er ég hissa að þetta tiltekna frímerkið hafi verið valið.  Flott mynd.

 

 


mbl.is Fallegasta frímerki ársins 2009 er með lundanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja...

Sko bæði búin að drekka kaffi og kók í dag. En það er bara svona. Sit bara heima með stelpurnar mínar núna, en frumburðurinn er lasin. Hún fékk hita í gærkvöld og var því heima í dag. Hjá litlunni er exemið eitthvað að minnka, sem betur fer. Vona bara að það herfi alveg. En þá þarf líka að fara að hlýna.

Góðar stundir!


Það er fjör

Það er bara fjör hér í bænum, enda hefur næturlífið löngum verið ansi skrautlegt í þessu bæjarfélagi. En það er nú bara gott að lögreglan skuli fá ábendingar frá fólki um svona mál. Gott þegar góðborgarar þessa bæjar eru á varðbergi gagnvart stútum í umferðinni, sem eiga náttúrulega ekki að vera til.

 


mbl.is Keyrði með tvo stuðara um bæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramótaheitin

Þau voru fjölmorg í ár. Að fara að hugsa betur um sjálfan sig, koma sér í form, status á dag á fésbókinni, og að fara að blogga meira. 

Það er skemmst frá því að segja að ég hef ekki staðið við eitt einasta þeirra. Jú jú, kannski farin að drekka aðeins meira vatn en maður gerði og blogga einstaka færslu. En það er líka allt of sumt.

En nú eru að koma mánaðarmót. Mánaðarmót, áramót, er það ekki svona næstum því það sama? Nei ég bara spyr. En nú fer maður vonandi að taka á því. En þar sem ég veit að ég er ég, þá ætla ég ekki að vera með neinar yfirlýsingar.

Annars er það að frétta að exemið er að hrjá hana Soffíu núna. Það hefur legið niðri núna um hríð, en nú er hún öll útsteypt í andliti og á annari hendinni. Síðast kom þetta í kinnarnar, nú er það á hökunni og í kringum munninn. Ekki mjög skemmtilegt. En það er töggur í stelpunni og hún lætur þetta ekki hafa nokkur áhrif á sig.

Mér gengur líka bara vel í skólanum. Er miklu mun skipulagðari núna er í fyrra, enda var það s.s. ekki erfitt að bæta. Er búin með fyrstu verkefnahrinuna og sú næsta tekur við.

Góðar stundir!

 


Læri að blogga.

Ég er að læra að blogga í skólanum. Eitthvað sem er bráðnauðsynlegt fyrir alla kennara víst. Wink

Nei, nei svona án gríns, þá er gott að geta komið frá sér efni út á netið, og þá erum við að tala um fræðsluefni. Því það er jú miðillinn sem nær best til blessaðar barnanna okkar.

HappyComputer

Lifið heil!!


Maður er stolltur íslendingur!

Þessa daganna gétur maður verið stolltur íslendingur.  Á hverjum degi heyrum við hörmungarsögur af hrillilegu ástandi á Haiti. En að vita að íslenska rústabjörgunnarsveitinn er þar úti og bjargar fólki. Að litla Ísland skyldi vera með þeim fyrstu til að senda hjálparsveit. Það vekur bara stollt í hjartanu. Við verðum að hugsa til allra þeirra sem eiga um sárt að binda.

Er það ekki bara málið?

Það voru örfáir útvaldir sem skuldsettu Ísland með blekkingum og svikum.

 

Nei, maður spyr sig!

 


mbl.is Skammast sín fyrir bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur ríkisstjórnin bara gert einn hlut í einu?

Er ekki hægt að vinna að upbyggingu samfélagsins meðfram Ísbjargarmálinu? Og afhverju ekki? Hvað eru ráðherrarnir margir? Einn? Tveir? Hafa þeir í alvörunni ekkért unnið í uppbyggingu landsins?

Nei, maður spyr sig!

 

 


mbl.is Ríkisstjórnin í vandræðalegri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt í alvöru...

... að ég væri búin að finna blogggírinn aftur eftir frekar dræmt bloggár síðasta ár. En hef þá sennilega bara tínt honum aftur.

Er að klára jólafríið. Á morgun byrjar skólinn. Já það er ágætt að vera í skóla. En það verður víst nóg að gera í náminu.

En svona er nú bara lífið

Góðar stundir!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband