Leita í fréttum mbl.is

Allt fínt að frétta bara....

Þegar maður er húsmóðir í námi er bara svo mikið að gera. Því miður hef hef ég ekki gefið mér neinn tíma til að blogga í sumar, en með lækkandi sól stendur það vonandi til bóta. Lenti reyndar í veikindum en er að jafna mig á þeim. Ekkert alvarlegt, var bara að greinast með flogaveiki. Svo nú má ég ekki keyra lengur, og er upp á náð og miskun annara komin. En ég á góða að svo þetta reddast allt saman. Joyful

ghelga_sitjiAnnars geri ég lítið annað þessa daganna en að lesa barna- og unglingabækur. Er í tveimur kúrsum í Háskólanum þar sem uppistaðan í lesefninu eru þesslags bókmenntir. Ég hef reyndar mjög gaman af. Er eimnitt að uppgvötva hvað Guðrún Helgadóttir er alveg brilljant höfundur. Er búin að vera að lesa bernskuminningar hennar: Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Ótrúlega skemmtilegar bækur og Guðrún segir svo skemmtilega frá. Við fullorðna fólkið getum haft alveg jafn gaman af sögunum eins og börnin, en samt á allt annann hátt.

En nú er þetta að breytast í eitthvað bókmenntablogg hjá mér. En það er allt í lagi. Ætli þetta verði ekki bara dáldið þanning fram að áramótum. En það gerir ekkert til. Það má hafa gaman af bókmenntum, og það hef ég.  Vona svo að ég hafi tíma fyrir ykkur öll í vetur. ´

Góðar stundir!! InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

bókmenntablogg eru sko ekki leiðinleg og bara gaman ef þú segir frá því sem þú ert að lesa. Barna- og unglingabækur geta nefnilega verið skemmtilegar fyrir okkur fullorðna fólkið t.d. Kuggur eftir Sigrúnu Eldjárn sem alltaf er hægt að glugga í.

Vona að þér gangi vel í náminu og líka að aðlagast sjúkdómi þínum. 

kveðjur yfir heiðina

Sigrún Óskars, 20.9.2010 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband