Leita í fréttum mbl.is

SELFOSS - frekar innileg færsla

Ykkur að segja er ég búin að vera langt niðri undanfarið.  Sakna frumburðarins allsvakalega, en hún kémur heim á morgun. Hún er búin að vera á Selfossi hjá ömmu sinni og afa í nokkra daga.  Og mig langar á Selfoss. 

Við bjuggum á Selfossi þangað til fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan.  Við áttum litla sæta íbúð, stóran garð og bílskúr.  Á Selfossi á ég foreldra mína, bræður og flesta vini mína. Systir mín bjó líka á Selfossi þangað til í vor.  Hún elti mig austur, fann sér mann og býr núna hér.  Það er gott að hafa hana.  En það breytir því samt ekki að ég sakna Selfoss allsvakalega á stundum.  Ég fæ svona köst. Og undanfarið er ég búin að vera í kasti. 

Við höfðum það voða gott á Selfossi.  Höfðum komið okkur vel fyrir. Hefðum reyndar þurft að skipta fljótlega um húsnæði, því íbúðin okkar var lítill.  En þá hefðum við bara gert það. 

En svo fluttum við austur.  Bóndinn til að láta gamlan draum rætast, nú er hann komin heim. Er að taka við búi af föðurbróður sínum og alsæll.  Og ég vissi s.s. ekkért hvað ég var að fara út í, enda hefði ég aldrei slegið til hefði ég séð fram í tímann. 

Jú, jú það á örugglega eftir að verða gott að búa hérna. Þegar maður fer að kynnast fólkinu.  Ef maður kynnist fólkinu.  Því það verður bara að segjast að manni er ekki beint boðin útréttur armurinn hérna.  Það er rosalega erfitt að kynnast fólki hérna.  Fólk er lokað og tekur ekki vel á móti aðkomufólki.  Og það er það sem ég er hérna, aðkomumanneskja. 

En hér er Bóndinn á heimavelli, á heimaslóðum. Alveg eins og Selfoss eru mínar heimslóðir, svona í hjartanu.  Ég er ekki Selfyssingur, en á Selfossi finnst mér ég heima.   

Ég er alin upp í Fljótshlíðinni.  Gékk í skóla á Hvolsvelli og vann þar seinna í stæsta fyrirtæki bæjarins.

En á Selfossi byrjaði lífið.  Þar átti ég mín bestu ár.  Ég gékk þar í framhaldsskóla og eignaðist vini. Fann ástina og lífið.  Þar eignaðist ég börnin mín, (þó að við höfum verið flutt austur þegar Soffía fæddist, þá átti ég hana á Selfossi.) Mér fannst við hafa það gott.

En nú er ég flutt austur.  Ég þekki ekki marga hérna enþá, enda efrfitt að komast inn í samfélagið, og ég búin að hanga heima í fæðingarorlofi. En vonandi á það nú eftir að breytast. 

Það tekur ekki nema klukkutíma að fljúga í bæinn og þrjú korter þaðan á Selfoss.  Selfoss er og verður alltaf minn heimabær. Þó ég sé ekki alin þar upp og þó ég búi þar ekki núna.

SELFOSS ER!!!!

Þessi pistill er skrifaður með fullri virðingu fyrir Austfirðingum. Þeir eru eins og þeir eru og það væri skrítið ef þeir væru öðruvísi.  Ég er bara í einhverju nostalgíukasti. Og það vita allir hvernig þessi nostalgígjuköst eru.

Lifið heil  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Ég vona að þetta breytist allt þegar þú ferð að vinna, ferð aðeins út af heimilinu. Maður getur alveg fengið upp í kok á heimilisstörfum og því að hafa bara hlutverk inná heimilinu. Allt annað að fara í aðra vinnu og hitta fólk, kynnast nýju fólki.

Hafðu það sem allra best. 

Sigrún Óskars, 13.7.2008 kl. 14:27

2 Smámynd: JEG

Elsku dúllan mín skil þig svooooo vel. Og trúðu mér það er ekki nóg að fara út að  vinna ónei. Maður er alltaf aðfluttur og þó að maður sá giftur manni sem bjó á svæðinu er það ekki nóg. Ég upplifði sko það sama hér þegar ég flutti hingað en minn núverandi bjó hér og vann. Ég kom keypti jörð með manni skildi og allt sem því fylgdi og lenti sko á milli tanna á fólki. Nú þó svo að ég gæfist ekki upp og findi annan mann (héðan) þá  batnaði ástandið ekki því hann var ekki af réttri ætt. Nei pólitíkin allsráðandi. Svo hér hef ég bara talað við fólk af því að ég verð en ekki sleit á því rassgatið og reynt að vingast við það. Fyrst ég er svona ómöguleg þá vil ég bara vera það í friði. Hér er ekki talað við mann um eitt né neitt og frétti ekkert. Þó komin séu 6 ár. Hér er illa tekið á móti nýju fólki  og ekkert gert til að því líki vistin. Þannig að ég leita vina annarstaðar og tala sjaldan við fólkið hér. OG að þurfa að passa sig hvernig maður talar er fáránlegt. Og vita að þessi og hinn þoli mann ekki ??? halló þetta fólk þekkir mann ekki einu sinni dööö.....

Svo að ég skil þig mín kæra. Knús á þig og eigðu góðan dag.

JEG, 13.7.2008 kl. 15:22

3 identicon

Æji skvísan mín, bara risastórt knús á þig.

Já maður tengist Selfossi á mjög margan hátt. Oh hvað ég þarf að fara að koma í heimsókn. Er alveg hryllileg að láta ekki sjá mig ennþá. Alltaf á leiðinni, enda aldrei komið austur áður.

ENN STÆRRA KNÚS SÆTA MÍN Á ÞIG OG FAMILÍUNA

Sveinbjörg M. (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 19:16

4 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

JEG: Ég er hætt að spá í því hvað fólki finnst um mig.  Ég er ég sjálf og ef fólk gétur ekki tekið manni eins og maður er, þá það.  Ég gét alltaf ,,skroppið í frí" til mömmu ef eitthvað bjátar á, sem betur fer.  Maður gefst ekki upp. 

Knús á ykkur öll

Þórhildur Daðadóttir, 13.7.2008 kl. 22:58

5 Smámynd: JEG

Já enda er það líka þannig hér. Ég er ég en ég get ekki flúið neitt svo ég held bara friðinn og held mig hjá mér. En málið er að svona fólk eins og býr hér getur ekki tekið manni eins og maður er. Þú þarft að vera svona og hinseginn. Alveg furðulegt. Hér komu konur á eftir mér og þær virka því þær gaspra nógu hátt og lifa nógu flott. En ég held að hamingjan sé ekki neitt meir hjá þeim.

Nei maður gefst ekki upp það er ekki í boði. Ég var næstum búin að gefast upp en var of stolt til þess enda hafði ég ekki efni á því að selja aftur og allt það dæmi.

Knús á þig essgan.

JEG, 13.7.2008 kl. 23:19

6 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Já, það er stundum erfitt að koma á nýja staði. Gefðu fólkinu sjens á að kynnast þér. Þau eiga ekki eftir að sjá eftir því, en ósköp er ömurlegt ef að fólk gefur ekki nýinfluttu fólki tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.kveðjur

Heiður Helgadóttir, 14.7.2008 kl. 19:19

7 Smámynd: JEG

Einmitt það er ótrúlegt hvað fólk er illa innrætt þegar svona er. Manni er ekki gefinn séns ja nema að vissu marki.

JEG, 14.7.2008 kl. 23:03

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég vona að frumburðinn komi þér bara í gott skap þegar hann kemur aftur.

Brynjar Jóhannsson, 16.7.2008 kl. 05:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband