Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Og enn....

... af henni Guðrúnu Helga vinkonu minni. Þekki konuna reyndar ekkert en er á fullu að lesa bækurnar 4326-4001-175x191hennar. Var núna að klára fyrstu bókina um þá kumpána Jón Odd og Jón Bjarna, sem er fyrsta bókin sem Guðrún sendi frá sér.  Hún er alveg ótrúlega skemmtileg. Líka fyrir okkur fullorðna fólkið. Og það er mín skoðun að hún sé alveg eins skrifuð fyrir okkur eins og börnin. Því miður hef ég sennilega bara tíma nema fyrir fyrstu fyrstu bókina að þessu sinni en á vonandi eftir að geta lesið þær allar einhverntímann.  Húmorin er alveg ótrúlega skemmtilegur í þessum bókum og barnsleg einlægni bræðranna skýn svo í gegn. Mæli með henni fyrir börn á öllum aldri alveg upp í 100. Wink

Mynd tekin af vefnum: forlagid.is

sumarfri_2010_051.jpgEn af mér og mínum er það að frétta að litla skottan mín er 3. ára í dag.  InLove 

Afmælisbarnið er á Leikskólanum og allir aðrir í öðrum önnum svo að fátt verður um veisluhöld í dag. En sennilega setur maður í eins og eina, tvær tertur um helgina.  Já tíminn líður og börnin stækka.  Hjá því verður víst ekki komist. Öll eldumst við.

 

Góðar stundir! Smile


Allt fínt að frétta bara....

Þegar maður er húsmóðir í námi er bara svo mikið að gera. Því miður hef hef ég ekki gefið mér neinn tíma til að blogga í sumar, en með lækkandi sól stendur það vonandi til bóta. Lenti reyndar í veikindum en er að jafna mig á þeim. Ekkert alvarlegt, var bara að greinast með flogaveiki. Svo nú má ég ekki keyra lengur, og er upp á náð og miskun annara komin. En ég á góða að svo þetta reddast allt saman. Joyful

ghelga_sitjiAnnars geri ég lítið annað þessa daganna en að lesa barna- og unglingabækur. Er í tveimur kúrsum í Háskólanum þar sem uppistaðan í lesefninu eru þesslags bókmenntir. Ég hef reyndar mjög gaman af. Er eimnitt að uppgvötva hvað Guðrún Helgadóttir er alveg brilljant höfundur. Er búin að vera að lesa bernskuminningar hennar: Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Ótrúlega skemmtilegar bækur og Guðrún segir svo skemmtilega frá. Við fullorðna fólkið getum haft alveg jafn gaman af sögunum eins og börnin, en samt á allt annann hátt.

En nú er þetta að breytast í eitthvað bókmenntablogg hjá mér. En það er allt í lagi. Ætli þetta verði ekki bara dáldið þanning fram að áramótum. En það gerir ekkert til. Það má hafa gaman af bókmenntum, og það hef ég.  Vona svo að ég hafi tíma fyrir ykkur öll í vetur. ´

Góðar stundir!! InLove


Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband