Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Hvað er betra en páskar með teyndó?

Sérstaklega þegar maður er ungur og ástfangin. Þetta veit hann Vilhjálmur jafnaldri minn. Mér fannst allavaganna fátt betra en páskar með teyngdó hér í dann. Það var jú á páskunum sem ég, ung stulka hitti teyngdafjölskyldu mína hér um árið. Bóndinn (sem var reyndar ekki orðin bóndi minn þá) fór með kærustuna austur á land og kynnti hana fyrri fjölskyldunni. Mér var tekið með kostum og kjörum enda teyngdafaðir minn heitinn höfðingi heim að sækja. Og það snart mig mest sú barnslega gleði sem gamli maðurinn sýndi þegar að við sonur hans settum um hringanna. Hann var svo innilega ánægður fyrir okkar hönd. Sú gleði var ósvikin. Enda var teyngdapabbi maður sem lifði fyrir syni sína, teyngdadætur og barnabörn. Okkar gleði var hans gleði.

Og þessir fyrstu páskar sem ég eyddi með varðandi manni mínum og fjölskyldu hans lifa svo sannarlega í minningunni.  Og  þó að ég sé jafnaldra hans Vilhjálms sem nú ver páskum með varðandi konu sinni og hennar fjölskyldu, þá eru nú tíu ár síðan þessir páskar mínir voru svo góðir.

Smile


mbl.is Vilhjálmur eyddi páskunum með tengdó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...

Þar sem fleiri en einn flokkur fara með ,,völd" er það boðið að það er alltaf annað stjórnmálaaflið sem völdin tekur. Margir tala um að hérna í denn hafi Sjálfstæðismenn ráðið öllu og framsókn fyllgt á eftir. Flestir sjá og heyra hvernig ástandið í stjórnarráðinu er. Og í borginni. Reyndu stjórnmálamennirnir í stóra flokknum sem ræður hvort eð er öllu, taka þessa nýju og óreyndu í nefið.  Þannig er það bara, held ég.

Annars hef ég nú ekki lagt það í vana minn að vera sammála manneskju í Vinstri Grænum, og þá alls ekki henni Sóley Tómasdóttur, með fullri virðingu.  En í þetta sinn verð ég að vera það. Og þykir það sjálfsagt tíðindum sæta.

 

 


mbl.is Uppfylling fyrir Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar!

Þeir fá nú ekki gott start blessuðu vorboðarnir. Keyrði einmitt fram á tvo Tjalda hér í bæ, norpandi undir runna í rokinu og rigningunni á Sumardaginn fyrsta. Maður er ekki óvanur svona umhleypingum um páska, en þegar að Sumardagurinn fyrsti gengur  í garð, ætlast maður einhvernvegin til þess að verðrið sé þá þegar orðið skaplegt. Ætli það fylgi því ekki bara að vera Íslendingur?

 


mbl.is Farfuglar streyma til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 745

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband