Leita í fréttum mbl.is

Það er gaman að vera mamma!

Mér er mjög hugleikið mömmuhlutverkið í dag.  Var að lesa viðtalið við hana Áslaugu Ósk í vikunni, og fór að hugsa hvað maður hefði það nú gott.  Hún Sigga mín er þó BARA búin að vera með flensu. 

Var að setja inn myndir á síðuna hjá dúllunum mínum. Og uppfæra dálítið.  Það er t.d. komið eitt gullkorn í viðbót.  Notaði tækifærið og ,,vafraði" aðeins á barnaland.is og stal svolítlu sem mig langar að deila með öllum.

Það er um það að vera mamma. InLove

ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég

matinn á meðan hann var heitur, gekk

í hreinum fötum og gat spjallað í

rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég

farið seint í háttinn, sofið út um

helgar, greitt mér daglega og gengið

um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég

því aldrei fyrir mér hvort

pottaplönturnar á heimilinu

væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði

enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég

skýrt, hafði fullkomið vald yfir

líkama mínum og tilfinningum

og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei haldið grátandi barni föstu til

þess að læknir gæti sprautað það

eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei brostið í grát við að horfa í

tárvot augu og þekkti ekki þá

hamingjuflóðbylgju sem getur

sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég

aldrei langt fram á nótt og horfði á

barn sofa eða hélt á sofandi barni

vegna þess að ég tímdi ekki að leggja

það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki hvað ein lítil vera getur haft

mikil áhrif á líf manns og hversu

óendanlega sárt það er að geta ekki

kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki að ég gæti elskað svona heitt og

hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég

ekki þetta einstaka samband móður

við barn sitt og gleðina sem fylgir

því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég

ekki tíu sinnum á nóttu til þess að

aðgæta hvort allt væri ekki

örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég

ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,

sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir

því að eiga barn.

Þetta er hverju orði sannara. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Rétt, þetta er hverju orði sannara. Kveðja,

Sigrún Óskars, 30.1.2008 kl. 19:10

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Hvert einasta orð svo satt.

Sigríður Sigurðardóttir, 1.2.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 745

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband