Leita í fréttum mbl.is

Hvað er þetta hvíta?

spurði ég matargestina í gær, og benti út um gluggann.  Allir urðu uppveðraðir, héldu sennilega að ég hefði séð ísbjörn, því þeir eru víst mikið á ferðinni núna.  Kallinn var hálfnaður út í bílskúr eftir hólknum.  En nei, engin var ísbjörninn, en hinsvegar féllu hvítar flygsur úr loftinu (án gríns), já það snjóaði hér í gær.  Reyndar bara snjóél, en snjór samt.  Það er júní! Það á ekkért að snjóa í júní.  Það á að vera sól og blíða 20 stiga hiti og gott veður. Það á að vera þannig veður að ég nenni út úr húsi.  Svo var ekki nema 6° hiti á Egilstöðum í morgun. 6° í júní! Þetta er náttúrulega bara lögreglumál Angry

 


mbl.is Snjóþekja á Fjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú ekki hlýindunum að fagna heldur hérna megin á landinu það er að segja á Snæfellsnesinu. Það er búið að vera norðaustan rok síðan á mánudag allavega á daginn, á kvöldin lægir stundum alveg niður í logn og maður veltir fyrir sér hvort það sé kannski best að snúa sólarhringnum við, sofa á daginn og vaka á nóttunni.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 12:37

2 Smámynd: JEG

Já það er búið að vera norðan skítakuldi .....já í júní. Fáránlegt.

Knús og kveðja úr sveitinni.

JEG, 19.6.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband