Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Talandi um að vera tæp.

Nú fór kellinginn alveg með það.  Drösla börnunum út í bíl i blyndbyl og ofankomu og keyra með þau í Egilsstaði í skygni sem var  - 2 metrar. Eldra barnið á leikskólann og litla með mömmu sinni í mömmuklúbb. 

Það er blyndabylur og ekkért ferðaveður, en ég fór samt af stað.  Ég þurfti jú að komast í minn mömmuklúbb.  Við erum farnar að hittast í gamla sláturhúsinu, sem nú heitir Vegahúsið.  Þar er búið að innrétta eins konar félagmiðstöð fyrir ungt fólk til að hittast.  Aðstaðan er mjög kósí, en í morgun var helst til kalt þarna.  Enda var litla dúllan mín ansi mikið farin að slappast undir það síðasta og við héldum að hún væri jafnvel komin með hita. Frown Þannig að mín fór og hrindi á heilsugæslustöðina og sagðist vilja tíma með hraði.  Ég fékk hann, en svo var barnið bara ekki það veikt.  Læknirinn sagði þetta bara kvef og mamman andaði léttar. Joyful

Við börðumst svo heim í jafnvel verra veðri en um morgunnin.  Ég hald að ég sé alveg búin að missa það að ana svona út í þetta veður.  En hvað á maður að géra.  Það er ALLTAF svona veður.  Jú ókey, það var kannski óvenju slæmt í dag, en....

Maður spyr sig hvenær í ókopunum það ætli að skána. Með vorinu?  Angry

 


Hollywood, Hollywood, Hollywodd.

Nú géta þeir farið að elska Bobby kallinn Fisher.  Hann er jú dauður upp á Íslandi.
mbl.is Hollywoodmynd um Fischer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er gaman að vera mamma!

Mér er mjög hugleikið mömmuhlutverkið í dag.  Var að lesa viðtalið við hana Áslaugu Ósk í vikunni, og fór að hugsa hvað maður hefði það nú gott.  Hún Sigga mín er þó BARA búin að vera með flensu. 

Var að setja inn myndir á síðuna hjá dúllunum mínum. Og uppfæra dálítið.  Það er t.d. komið eitt gullkorn í viðbót.  Notaði tækifærið og ,,vafraði" aðeins á barnaland.is og stal svolítlu sem mig langar að deila með öllum.

Það er um það að vera mamma. InLove

ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég

matinn á meðan hann var heitur, gekk

í hreinum fötum og gat spjallað í

rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég

farið seint í háttinn, sofið út um

helgar, greitt mér daglega og gengið

um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég

því aldrei fyrir mér hvort

pottaplönturnar á heimilinu

væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði

enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég

skýrt, hafði fullkomið vald yfir

líkama mínum og tilfinningum

og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei haldið grátandi barni föstu til

þess að læknir gæti sprautað það

eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei brostið í grát við að horfa í

tárvot augu og þekkti ekki þá

hamingjuflóðbylgju sem getur

sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég

aldrei langt fram á nótt og horfði á

barn sofa eða hélt á sofandi barni

vegna þess að ég tímdi ekki að leggja

það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki hvað ein lítil vera getur haft

mikil áhrif á líf manns og hversu

óendanlega sárt það er að geta ekki

kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki að ég gæti elskað svona heitt og

hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég

ekki þetta einstaka samband móður

við barn sitt og gleðina sem fylgir

því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég

ekki tíu sinnum á nóttu til þess að

aðgæta hvort allt væri ekki

örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég

ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,

sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir

því að eiga barn.

Þetta er hverju orði sannara. Smile


Veðraveturinn mikli.

Veturinn 1918 er þekktur sem frostaveturinn mikli.  Ætli veturinn 2008 verði ekki þekktur í framtíðinni sem veðraveturinn mikli?  Mér finnst að minnsta kosti að það sé alltaf vont veður.  Kannski er það bara ég, maður verður jú frekar var við veðrið þegar maður býr á berangri upp í sveit. En ég er allaveganna að verða búin að fá alveg nóg af honum Kára kunningja mínum. 

Ég fór með hana Siggu mína til læknis á laugardaginn, hún er víst með bronkítis og er komin á sýklalyf, svo hún fái ekki lungnabólgu upp úr þessu.  Hún er búin að vera hitalus í 2 daga, en sökum veðurs þá fór hún ekki í leikskólann í dag. Alveg tíbíst.  Vonandi kemmst hún á morgun. Sendi inn mynd af litla rokkaranum mínum sem frænka hennar tókCool LungA2007 ofl 007

Það versta er bara að nú er Soffía komin með kvef líka. Frown

En við vonum það besta. Smile


Kvittið fyrir innlitið!

Það drepur engan að skrifa í gestabókina!!! Angry

Stillt og góð.

Hef áhveðið að hegða mér vel í dag. Þó ég standi við orð gærdagsins.

Eldra afkvæmið er enþá lasin.  Hún er nú samt öll að braggast og kemst vonandi á leikskólann eftir helgi.  Mamman er alveg uppgéfin þessa dagana þegar litli orkuboltin er svona heima. Smile

Hann Kalli okkar er loksins komin til okkar, eftir að hafa verið einbúi í íbúðinni á Egilstöðum í um 10 daga.  kattargreyjið var dálítið ringlaður svona fyrst, en er allur að koma til.

Annars allt gott að frétta af Héraði.


Bara alveg óvart!

Einmitt, gaurinn tók bara alveg óvart of stórann skammt.  Og skyldi ekki einu sinni eftir sig bréf.  KOMMON!!GetLost
mbl.is Ledger virðist hafa látist af slysförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagurinn í dag

Dagurinn í dag er um marg merkilegur dagur.  Í dag eru 35 ár liðin síðan eldgos hófst í Heimaey. Það þýðir að það eru 35 ár síðan mest allt móðurfólkið mitt flutti alfarið upp á land.  Einhverjir fóru þó aftur og þessvegna á ég svo mikið af ættingjum þar.  Í teilefni dagsins verður mikið húllumhæ í Eyjum m.a. blysför og hátíðardagsskrá í Höllinni.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/23/35_ar_fra_gosinu_i_heimaey/

Hún litla Soffía Kristín okkar er 4. mánaða í dag.  Hún vex og dafnar voða vel janúar 2008 008

 

 

 

 

 

 

Guðrún Sigríður tók upp á því að fá kvef svo mamma hennar kyrrsetti hana heim aí dag.  En mér sýnist hún nú vera það hress að hún komist alveg í leikskólann á morgun.  Auk þess þarf ég að útrétta svo mikið á morgun að ég læt hana bara fara. WhistlingBandit

 

 

 

 

 


Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 760

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband