Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Poker, punktur, olsen olsen

Nú eru unglingarnri okkar farnir að spila ólsen ólsen upp á peninga. Ættum við þá ekki bara að halda stærsta ólsen ólsen mót landsins í henni Reykjavík?

Allir sem opna einhverntímann fyrir sjónvarp hafa væntanlega séð allar þær pókerauglýsingar sem á okkur dundu fyrr á árinu. Öll þessi pókermót sem sögð voru alveg lögleg og ekkért væri að.

Er það bara misskilningur hjá mér eða eru fjárhættuspil ekki bönnuð á Íslandi?  Og afhverju er þá verið að senda þau skilaboð að það sé bara allt í lagi að spila upp á fé ef það græðir örrugglega enginn á því?

Og þegar fólk sem er þekkt í þjóðfélaginu, fólk eins og Gilzenegger, sem ungmenni taka sér því miður til fyrirmyndar, er að senda þau skilaboð að það sé töff að spila upp á peninga.  Þetta finnst mér alger hneisa.

Ég vil samt taka ofan hattinn fyrir starfsfólki sveitarfélagsins sem hefur með árverkni og vökullu auga komið auga á vandann, því það er jú ekki sjálfgefið að svona komist upp. Mér finnst gott framtak að láta foreldra vita af þessu hátterni unglingana og vona bara að sem flestir foreldrar taki í taumanna.

 


mbl.is Spila Olsen Olsen upp á peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörkudama þessi forseti

Hún er hörkukelling, hún Ásta Ragnheiður. Hefur sko góða stjórn á alþingisormunum. Enda veitir ekki af sýninst manni.  Látandi eins og óþekkir krakkar gasprandi og þvaðrandi. Held þeir ættu bara að fara að taka sér frí blessaðir. Hvíla sig aðeins. Þeir gera þá ekkért af sér á meðan. Whistling


Þá kom loksins veturinn!

Hann kom í gær, veturinn.  Það var fannfergi á götum Selfosscity í morgun. Og litlir fætur áttu erfitt með að fóta sig í snjónum. Þessi snjór kom allur á einum sólarhring. Á fyrsta degi aðventu. Vá hvað það er grand.

Mér líkar ágætlega við snjóinn, á meðan hann verður ekki of mikill. Á meðan ég kemst leiðar minnar. En kannski er bara ágætt að vera í próflestri þegar snjóar svona.

4d7iQ

Spurning að fá sér svona flík í kuldanum.

Góðar stundir!


Draumar geta víst ræst.

Sjáið þið bara hana Susan Boyle sem er að géfa út plotuna sína. Þessi brjóstumkennanlega skoska kona sem sigraði heiminn. Mér finnst þetta svo falleg saga að ég er bara klökk.

 

Og hver man ekki eftir honum Poul Potts hér um árið. Það er líka falleg saga.

Ekki hefur maður nú mikið heyrt frá kappanum síðan. en voandi hafa þessi tvö náð að höndla það sem þeirra beið og bíður í framtíðinni.

Góðar stundir! 

 

 


Nýja Ísland?

Það tala allir um nýja Ísland. Sorry, en ég bara sé það ekki.  Sama vitlaysan heldur áfram. Eini munurinn er sá að nú er almúginn svo illa staddur að hann gétur ekki tekið þátt.

 

 


mbl.is Hlutur í Högum ekki til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, kallgreyjið!

Hann hefur tekið það svona líka svakalega nærri sér að missa konuna að hann þarf að koma í stað hennar. 

Nema þessar kenndir hafi alltaf verið til staðar, en konan hans haldið þeim niðri. Það erum jú oftast við sem höfum vit fyrir mönnunum okkar. Whistling

En hvað veit ég?

 


mbl.is Mætti í kvenmannsfötum í ræktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig má það vera...

... að í okkar upplýstu veröld géti olía lekið í hafið í 10 vikur? Og enginn segir neitt. Hvar voru öll umhverfisverndarsamtökin þá?  Svo á að reyna að bjarga málunum og þá kviknar í.

Á þetta að vera svona?

Nei, ég bara spyr.

 


mbl.is Hafa náð valdi á olíueldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÚIN....

... með ritgerðina sem er búin að liggja á mér eins og mara alla þessa viku. Sendi hana í póst í dag.  Þá er það bara næsta verkefni.

En annars er frumburðurinn fimm ára í dag. Þessi elska stækkar og þroskast svo hratt núna.

Afmælisstelpan

Afmælisstelpan mín

Hún á von á 6 vinkonum á morgun og er mjög svo spennt. 

Og við foreldrarnir eru náttúrulega að springa úr stollti. InLoveInLove


Svefnvenjur dætra minna

sleeping_baby_girl_poster-p228815031608895406t5ta_400Það er alveg ótrúlegt hvað eitt kvöld getur raskað svefnvenjunum hjá þessum krílum.  Þær hafa nú s.s. alveg mátt vera reglulegri svefnvenjurnar hjá okkar dætrum, en þær hafa það frá henni móður sinni að meiga ekki vera að því að fara að sofa á kvöldin.

Frumburðurinn fór í leikhús í gær, með ömmu sinni og nöfnu. Sýningin byrjaði kl. 5 og endaði kl. korter yfir sjö. Þær stöllur voru ekki komnar heim á Selfoss fyrr en rúmlega átta. Rúmlega háttatíma dömunar. Og þar sem var svo gaman að sjá Kardemommubæinn þá var mín frekar uppveðruð eftir þetta allt saman.

Nú, litla systir, sem var búin að hanga yfir foreldrunum allann daginn, var náttúrulega guðs lifandi fegin að fá systur sína heim, og það tók enþá lengri tíma að ná henni niður.

Þær systur fóru s.s. allt of seint að sofa. Og þannig var morgunnin í morgun Allir svo þreyttir og syfjaðir, bæði foreldrar og börn. Ætlum ekki að láta þetta koma fyrir aftur, en það gerir það örugglega.

En svona er nú bara lífið og uppeldið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 815

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband