Leita í fréttum mbl.is

Akkurat núna....

...hef ég bara ekkért að segja.  Mér finnst engar fréttir þannig að mig langi að blogga eitthvað um þær.  Það eru allir bara svo djö.... svartsýnir.   Það er ekkért í sjónvarpinu.  (Nenni bara ekki að hofa á Silfrið), litlan sofandi og frumburðurinn að horfa á DVD myndina sem hún og amma hennar keyptu um helgina. 

Foreldrar mínir komu um helgina.  Ætuðu ekki að vera heima á silfurbrúðkauinu og komu þess vegna hoingað.  Það vakti mikla kátínu hjá ungviðinu, sérstaklega frumburðinum sem sér ekki sólina fyrir ömmu sinni og afa. 

Þannig að það er bara gott mál.

Lifið heil.


Það hlaut að koma að því!

Veturinn er komin hérna austur á landi.  Já það snjóaði hér fyrst í fyrradag, en var svo snjólaust í gær.  Og nú er snjóföl hérna á hlaðinu. 

Og fyrir ykkur sem hélduð að ég ætlaði að tala um kreppuna á bankanna:

 Ha ha ha ha ha!!!

Þar lék ég laglega á ykkur.  Nenni ekki að velta mér upp úr slíkum hlutum.  

Komin í hálfgert jólaskap í snjónum bara.  Fer reyndar bráðum að undirbúa þau arna.  Held bara eitt stykki afmæli fyrst.  Þegar Frumburðurinn verður 4. ára í enda mánaðarins. 

Sko hvað ég hef verið alveg akkurat i planinu.  Frumburðurinn er fæddur í endaðann október.  Þegar sá pakki er búin allur, passar að fara að plana jólinn.  Alveg passlega langt á milli pakka.

En við erum hress hér í snjónum fyrir austann.   Bæði menn og málleysingjar.  Rjúpurnar stungnar af eitthvað upp í fjall. Allar nema ein.  Hún flaug á glugga í Leiksskólanum og steindrapst.  Greyjið.

Nóg af bulli, knús og klemm.   

 


Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Okt. 2008
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.10.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 1118

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband