14.2.2008 | 15:33
Ég fór í Bónus....
Sem er kannski ekki í frásögur færandi. En alltaf skal ég blóta jafn mikið þegar ég fer þaðan út. Ekki yfir verðinu, nei, verðið er gott. Maður versla ódýrara í Bónus. En hvaða dúddi var það sem hannaði þessar bónusverlannir. Og bara verslannir yfirleitt. Á Egilstöðum eru tveir súpermarkaðir. Og skipulagið þar er nokkurnvegin eins. Þegar þú kémur inn bíður þín allskonar bakkelsi. Kleinur snúðar, kökur og dýrindis kræsingar. Svo kémur grænmetið og ávextirnir. Og svo kémur allt þunga dótið. Ísin, mjólkin og það allt. Og maður vandar sig mjög að versla. Passa að setja ekki mjólkina ofan á vínarbrauðið, svo það kremjist nú ekki og alls ekki að setja 2 lítra ísdolluna ofan á salatið. Maður puðar við að skipuleggja svo að allt fari nú örugglega vel og það fari vel um allt. Svo kémur maður að kassanum. Og maður vandar sig líka við að raða öllu á færibandið svo allt fari nú sem best út úr verslunnarferðinni. En hvað gérist. Við lendum í þessu sem stundum magninnkaup. Með fullri virðingu fyrir blessuðu starfsfólkinu þá endar það á að kremja fyrir manni blessaða vöruna, með því að ýta kleinunum út í vegg og mjólkini þar ofaná. Ég kém oft og yðulega örg úr verlsunnarferð því maturinn er eitthvað svo mikið ólystugri ef hann er allur í kremju. Fólkið á kassanum mætti nú alveg aðeins pæla í þessu. Ég veit alveg að það gétur oft verið mikið að géra, ég er jú sjálf kassadama, en smá virðing fyrir kúnnanum sakar ekki. Þú sérð alveg kvernig kúnninn raðar upp á færibandið, hvort honum er sama þó maturinn klessist eða ekki.
Nei maður spyr sig.
Bloggfærslur 14. febrúar 2008
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.10.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar