22.3.2008 | 19:33
Blessuð sértu sveitin mín.
Ég komst í gær í bíltúr í gömlu sveitina mína. Fljótshlíðina. Ég fór með fjölskyldunni, foreldrum mínum og systkynum. Ég hélt kannski að ég myndi fyllast einhverri svaka nostalgíu við að koma í gömlu sveitina mína, en svo reyndist ekki vera. Ég sé ekki mikið eftir jörðinni sem pabbi og systkyni hans seldu fyrir nokkrum árum. Vildi í rauninni að þau hefðu gert það svo miklu miklu fyrr, því búskapurinn var alltaf kvöð á foreldrum mínum. En pabbi tók við búinu þegar foreldrar hans dóu í bílslysi. Hann ætlaði aldrei að verða bóndi. Ég held að mamma hafi aldrei verið ánægð í sveitinni. Allavegana er ég fegin að þau skuli ekki búa þar. Ekki misskilja mig, þetta er yndislegur staður. En engin okkar var nokkurn tímann frekar ánægt þarna. Þessvegna er ég svo hissa að pabbi og mamma skyldu tolla þarna eins lengi og raun bar vitni. En það gerðu þau.
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
GLEÐILEGA PÁSKA......
Solla Guðjóns, 23.3.2008 kl. 03:25
Það passa alveg. Margrét er föðursystir mín. Kíkti einmitt akkurat til hennar í kaffi í gær bara.
Þórhildur Daðadóttir, 23.3.2008 kl. 08:51
Gleðilega páska sömuleiðis Solla mín.
Þórhildur Daðadóttir, 23.3.2008 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.