Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
5.11.2010 | 09:35
Alveg er þetta dæmalaust!!
Hvað stjórnsýslan er alveg óskaplega máttlaus í allri viðleitni sinni til að hjálpa fólki. Ef viðleitnin er þá til staðar. Og nú mega hjálparsamtök ekki hjálpa þeim sem ekki geta hjálpað sér sjálfir sökum þess að stjórnsýsla þessa lands stendur í vegi fyrir allri sjálfsbjörg fólks hérna í landinu.
Heyrði einmitt í fjármálaráðherra í útvarpi í morgun, þar sem hann gagnrýndi þessar biðraðir hjálparsamtaka. Hann vill að fólk sem ekki á fyrir mat leggi inn umsókn í kerfið, fari í mat og viðtöl og séu sé svo metið hvort það þurfi yfirhöfuð á einhverri hjálp að halda. Það má bara veltast í kerfinu eins og allt annað.
Og á meðan mega heilu fjölskyldurnar bara svelta heilu hungri, á meðan ríkið fær sitt, og meira til eiga allir að vera ánægðir.
Ég er alveg yfir mig bit yfir þessu öllu saman. Og þá mest yfirvöldum og ríkisstjórninni og í raun bara ríkisbatteríinu öllu, sem virðist vera allt eins og það leggur sig vita getulaust að gera nokkuð fyrir almenning í landinu.
Deila á matargjafir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar