18.6.2008 | 13:02
Nýjar tennur, skrið og 17. júní
Jæja, nú er ég búin að finna tvær tennur hjá litlunni. Loksins!!! Hún er líka farin að skríða út um allt. Mér finnst það frábært og ég er að springa úr monnti. Fór í Kaupfélagið í morgun og keypti tannbusta.
Svo verður maður að fara að passa allt og alla því dýrið er komið á stað, farin að skríða.
Annars fórum við fjölskyldan á 17. júní hátíðarhöld á Egilstöðum. Hlustuðum á aaaaalllllllllltttttttt of llllllaaaaaaaannnnnnngggggggaaaaaa hátíðardagskrá á meðan frumburðurinn var að bíða eftir að komast í hoppukastala, sem n.b. var ekki hægt að blása upp fyrr en að dagskrá lokinni, því að þetta var allt saman flutt inn í íþróttahús. Því að það var ekki allstaðar gott veður!!!! Það var ekki hægt að keyra barnadagskánna samhliða hátíðardagskránni eins og ef þetta hefði verið úti. (Þó það hefði s.s. alveg verið hægt) heldur var ekki hægt að byrja á henni fyrr en um kl. 4. en þá voru flestir krakkar ornir æfir af óþolinmæði og aðrir farnir heim. Þess má géta að dagskráin byrjaði kl. 2, og reiknið nú. Fólk var farið að fara löngu áður en henni lauk. Svo voru allir alveg búnir á því þegar heim var komið.
Mig langar að þakka Kristrúnu systir fyrir hjálpina með stelpurnar mínar. Ég hefði bilast ef hún og bóndi minn hefði ekki verið með mér.
En svo fann ég þessar tvær nýju tönnslur hjá dúlluni þegar ég ver að géfa henni að borða í gær. Ég hoppaði næstum hæð mína, (barnið er að verða 9. mánaða).
Litla tönnsludúllan mín
Stóra rúsínan í hoppukastala á Sjómannadaginn
(ég gleymdi myndavélinni heima í gær)
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 18. júní 2008
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.10.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar