Leita í fréttum mbl.is

Það versnar og versnar...

Ekki lagast það...    veðrið á ég við. Við Soffía Kristín erum veðurtepptar heima hjá okkur. Og það eru engar ýkjur.   Það er allt snarvitlaust á Fagradalnum, björgunarsveitir að störfum og fjör.  Ég  veit það af eigin reynslu hvað dalurinn gétur verið leiðinlegur.  Lenti þar í blyndabyl einu sinni. 

Símon fór með skottuna yfir.  Í leikskólann.  Það eru allir að segja að segja að ég eigi bara að láta hana vera í leikskólanum hérna.  En það kémur samt eiginlega ekki til greina.  Í leikskólanum hér í Brúarási eru börn allt niður í 6 mánaða.  Pínulítil.  Og ekkért deildaskipt, öll börn saman.  Mín er búin að reyna það að vera í dagvistun með yngri börnum, og hún þoldi það ekki.  Þá var hún hjá dagmömmu á Egilstöðum, þar sem voru bara börn innan við eins árs.  Þá fór ég frá henni grátandi á hverjum morgni, en það hefur ekki komið fyrir nema einu sinni í leiksskólanum.  Hún er ánægð í þessum leikskóla, er að kynnsat krökkunum og nýtur sín vel.  Afhverju þá að vera að skipta.

En afhverju er það að það er alltaf verið að skipta sér af því hvernig maður elur upp börnin sín?  Það virðast allir hafa skoðun á því.  Jú jú kannski vill fólk vel, en það er ÉG sem veit hvað barninu MÍNU er fyrir bestu.  Allt sem ég aðhefst í sambandi við það miðast að því að það sé hamingjusamt.  Og ég held að fólk ætti bara frekar að líta í eigin barm, heldur en að vera endalaust að amast yfir því hvernig aðrir ala upp börnin sín, eða í þessu tilfelli hverja maður velur til að ala upp börnin sín, já og bara hvernig aðrir haga lífi sínu almennt.  Ég er bara ég og ég lifi eins og ég kýs.  Og ég kýs það sem ég tel best fyrir börnin mín.

Góðar stundir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Hæ!

Kannast við þetta með hvað allir eru klárir í að leiðbeina mér með mín börn. En það minnir mig á það að ég var víst ekkert betri. Ég á fullt af bræðrum og þeir voru flestir komnir með börn þegar ég byrjaði, byrjaði sjálf ekki fyrr en eftir þrítugt. Ég var sko alveg með það á hreinu hvað ég ætlaði að lofa mínum að gera og ekki, og þau myndu sko ekki komast upp með þetta og hitt. Ein mágkona mín fékk alveg nóg af mér einu sinn og hellti sér yfir mig og endaði með: Og ég skal sko bíða eftir því að þú komir með þín fullkomnu. Nú mín eru komin og það þrjú. Hún hefur svo sem ekkert minnst á þetta að fyrrabragði svo ég ákvað að vera fyrri til fyrir nokkrum árum og við hlógum mikið. En þegar ég hugsa um það þá held ég að hún hafi aldrei sett út á mig og mínar uppeldisaðferðir. Gangi þér vel með þetta allt.

Anna Guðný , 9.2.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 813

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband