Leita í fréttum mbl.is

SELFOSS - frekar innileg færsla

Ykkur að segja er ég búin að vera langt niðri undanfarið.  Sakna frumburðarins allsvakalega, en hún kémur heim á morgun. Hún er búin að vera á Selfossi hjá ömmu sinni og afa í nokkra daga.  Og mig langar á Selfoss. 

Við bjuggum á Selfossi þangað til fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan.  Við áttum litla sæta íbúð, stóran garð og bílskúr.  Á Selfossi á ég foreldra mína, bræður og flesta vini mína. Systir mín bjó líka á Selfossi þangað til í vor.  Hún elti mig austur, fann sér mann og býr núna hér.  Það er gott að hafa hana.  En það breytir því samt ekki að ég sakna Selfoss allsvakalega á stundum.  Ég fæ svona köst. Og undanfarið er ég búin að vera í kasti. 

Við höfðum það voða gott á Selfossi.  Höfðum komið okkur vel fyrir. Hefðum reyndar þurft að skipta fljótlega um húsnæði, því íbúðin okkar var lítill.  En þá hefðum við bara gert það. 

En svo fluttum við austur.  Bóndinn til að láta gamlan draum rætast, nú er hann komin heim. Er að taka við búi af föðurbróður sínum og alsæll.  Og ég vissi s.s. ekkért hvað ég var að fara út í, enda hefði ég aldrei slegið til hefði ég séð fram í tímann. 

Jú, jú það á örugglega eftir að verða gott að búa hérna. Þegar maður fer að kynnast fólkinu.  Ef maður kynnist fólkinu.  Því það verður bara að segjast að manni er ekki beint boðin útréttur armurinn hérna.  Það er rosalega erfitt að kynnast fólki hérna.  Fólk er lokað og tekur ekki vel á móti aðkomufólki.  Og það er það sem ég er hérna, aðkomumanneskja. 

En hér er Bóndinn á heimavelli, á heimaslóðum. Alveg eins og Selfoss eru mínar heimslóðir, svona í hjartanu.  Ég er ekki Selfyssingur, en á Selfossi finnst mér ég heima.   

Ég er alin upp í Fljótshlíðinni.  Gékk í skóla á Hvolsvelli og vann þar seinna í stæsta fyrirtæki bæjarins.

En á Selfossi byrjaði lífið.  Þar átti ég mín bestu ár.  Ég gékk þar í framhaldsskóla og eignaðist vini. Fann ástina og lífið.  Þar eignaðist ég börnin mín, (þó að við höfum verið flutt austur þegar Soffía fæddist, þá átti ég hana á Selfossi.) Mér fannst við hafa það gott.

En nú er ég flutt austur.  Ég þekki ekki marga hérna enþá, enda efrfitt að komast inn í samfélagið, og ég búin að hanga heima í fæðingarorlofi. En vonandi á það nú eftir að breytast. 

Það tekur ekki nema klukkutíma að fljúga í bæinn og þrjú korter þaðan á Selfoss.  Selfoss er og verður alltaf minn heimabær. Þó ég sé ekki alin þar upp og þó ég búi þar ekki núna.

SELFOSS ER!!!!

Þessi pistill er skrifaður með fullri virðingu fyrir Austfirðingum. Þeir eru eins og þeir eru og það væri skrítið ef þeir væru öðruvísi.  Ég er bara í einhverju nostalgíukasti. Og það vita allir hvernig þessi nostalgígjuköst eru.

Lifið heil  


Og þá kom steypiregn...

...rétt í þann mund sem Bóndinn var búin að slá.  Angry

Bóndinn sló og sló í gær. Sumir héldu að hann ætlaði bara aldrei að hætta. Hann sló Leytið í gærdag og Brúartúnin í gærkvöld. 

Og í morgun fór að rigna!!!

TÍBÍST!!!

En þá verður bara þurrkur á morgun í staðinn.


Grasekkja í grasinu á grasinu, eða eitthvað.....

Ég er grasekkja, í bókstaflegri...

Bóndinn er í grasinu, á grasinu, eða hvað maður segir....

Það er s.s. heyskapur

Það var slegið á miðvikudag...

bundið í rúllubagga í gær...

og slegið meira í dag.

 

Og þar sem ég er með lítið barn, er ég voða mikið heima...

meðan Bóndinn er í grasinu.

Enda var húsmóðirinn á heimilinu búin að segja

að hann ætti að vera í fríi um Versló!!! Angry

 

Knús á línuna InLove


Þar kom það!!!

Bóndinn kom með það í kvöld!

Nettengingin okkar er náttúrulega handknúin, og ég vissi það ekki.

Það skýrir ýmislegt!!!

Smile Smile Smile Smile

 


Akkurat núna...

...bara nenni ég ekki að vera til.  Ég nenni ekki að draga andann.  Finnst raunar varla taka því.  Frumburðurinn er enþá í vellistingum á Selfossi hjá ömmu sinni og afa, Bóndinn í heyskap, að binda, rúlla fyrstu túninn.  Litlan sofandi og ég sit hérna og hundleiðist.  Nóg að géra! Ég bara nenni því ekki!  Og auðvitað er þessi blessaða eldgamla hhhhææææægggggggenga nettenging mín alveg extra hæggeng í dag.  Enda er ég að spá í að fara að skipta. Því að ef ég á að vera í góðu sambandi við umheiminn, þá verð ég að hafa góða nettengingu.  En þar sem ég bý upp í sveit, þá á ég ekki kost á að fá mér ADSL.  Ég fengi mér pottþétt svoleiðis ef ég gæti.  En nú verð ég að fara að kanna hvað er best.  Hvað virkar hjá mér, og hvað það kostar. Það kostar allt orðið svo mikið.  En þar sem ég nenni ekki neinu núna þá nenni ég ekki þessu heldur.  Fer á stúfanna á morgun, kannski.

Kveðjur úr sveitinni 


Er á lífi!!

Er á lífi og komin í bloggheima aftur. 

Búið að vera nóg að géra.  Frumburðirinn búin að vera í fríi og við höfum bara notið lífsins. Hún lagðist svo í víking og flaug austur á Selfoss í gærkvöld.  Guðrún Steinars vinkona kom í heimsókn um helgina. Kom á föstudag og flaug svo aftur suður í gær.  Ég sendi frumburðinn minn með henni í flug því sú stutta ætlar í orlof til ömmu sinnar og afa á Selfossi.  Hún var svo spennt í gær að hún mátti varla vera að því að kveðja foreldra sína í gær.  Þannig að þetta var miklu efiðara fyrir okkur heldur en hana.  Svo var hún bara alger engill í flugvélinni þessi elska.  Vá hvað hún er dugleg.

Sláttur er hafin í Blöndugerði!  Bóndinn sló fyrsta slátt í gærkvöld.  Það á svo að ná því saman um helgina. Þannig að það er nóg að gera í sveitinni. Smile

Bless í bili

 


Jæja best að blogga.

Ég þarf liggur við að læðast í tölvunna þessa daganna.  Frumburðurinn komin í sumarfrí fram í miðjan ágúst.  Eða öllu heldur, hún er hætt í Hádegishöfða í Fellabæ.  Hún byrjar í leiksskólanum hér í Brúarási í ágúst, eftir sumarfrí ef allt gengur eftir.  Þá fara báðar stelpurnar mínar á þann leikskóla. Mikil ósköp hvað börnin stækka hratt.

maí 2008 063

Elsku stelpurnar mínar, frekar nývaknaðar


Er ekki betra...

...að vita hverju börnin þín klæðast. Foreldrar þessa unga manns skilja greinilega ekki ensku.

asiankid


Með Fed -Ex í rassvasanum.

Hver myndi ekki vilja eignarst Federline - gallabuxur?  Það er það næsta sem maður kemst Briteney. Og hver vill ekki komast í tæri við Britney. Jafnfel þó maður sé bara með exinn á afturendanum. 


mbl.is Kevin á von á milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paddington 50 ára

Paddington%20Bear%20(3)

Hver man ekki eftir krúttlega bangsanum Paddington sem heitir eftir lestarstöðinni frægu í London.

Í morgunþætti ITV sjónvarpsstöðvarinnar í Bretlandi er verið að halda upp á 50 ára afmæli þessarar elsku.

Ég man eftir að hafa horft á þætti um Paddington í æsku og þótti þeir agalega skemmtilegir. Hann var svo sætur og góður þessi litli bangsi sem fannst á brautarstöðinni og elskaði samlokur með marmelaði.

Hann var bara svo agalega mikið krútt.

En hvar er Paddington nú?

Konan á bak við Paddington heitir Shirley Clarkson, og er einna þekktust fyrir að vera móðir Jeremy Clarkson sem er þekktur sjónvarpsmaður í Bretlandi. (íslenskir sjónvarpsgláparar hefa sjálfsagt séð hann í Topgear). Shirley skapaði sér nafn þegar hún stofnaði fyrirtækið Gabrielle Designs lítið fyrirtæki sem í fyrstu seldi mismunandi tetegundir í Doncaster en óx að lokum upp í alþjóðlegt fyrirtæki sem selur bangsann sæta út um allan heim.

Opinber heimasíða Paddington: http://www.paddingtonbear.co.uk

Heimasíða sjónvarpsþáttarins ,,This Morning" á ITV: http://www.itv.com/Lifestyle/ThisMorning/default.html     

paddington

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband