Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
22.1.2008 | 15:20
Afhverju ekki?
Herjólfur siglir ekki í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 11:51
Frétt .... eða ekki?
Er það bara nokkuð orðið fréttnæmt þegar springur meirihluti í henni Reykjavík? Það skéður á svona 100 daga fresti. Svo maður hlýtur að spyrja sig, hver verður næsti borgarstjóri? Hver er næstur í röðinni? Það er jú ljótt að skilja einhvern útundan. Það þurfa allir að fá að spreyta sig. Eða hvað? Ég er allaveganna mjög fegin að vera ekki borgarbúi um þessar mundir. Að vita ekki hver verður kallinn í brúnni á morgun, það gétur varla verið þægilegt.
En maður hlýtur að spyrja sig líka: Hvað kémur okkur, landsbyggðarpakkinu þetta við? Ég sem bý eins langt frá Reykjarvík og mögulegt er. Því yrði varla slegið upp á forsíðu þó að meirihlutinn á Fljótsdalshéraði myndi falla. Það yrði sennilega ekki fysta frétt í fjölmiðlum. Eða Akureyri, eða Húsavík. Alltaf skal það vera Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík. En bara því miður þá býr líka fólk út á landi.
Það er jú bara staðreynd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 11:22
SÆTT
Horfði á fæðinguna í spegli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2008 | 13:40
Það er af sem áður var
Sú var tíð að maður fór ekki í spjarirnar sínar nema einu sinni og setti þær svo beint í þvott. Maður fór í þær einu sinni. Þetta var þegar maður var ungur og barnlaus og útlitið skipti mann mestu máli í lífinu. En svo eignaðist maður fjölskyldu, mann og börn, og fór svolítið að gleyma sjálfum sér. Það gerist þegar að maður verður mamma. Svo núna áðan þá stóð ég mig að því að stinga þeim aftur inn í fataskáp, buxunum sem ég var í á fundinum á föstudagskvöldið. Maður leggur áherslu á að þvo af börnunum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.1.2008 | 17:05
Hvert er þessi veröld okkar á leiðinni?
Hvert stefnir heimurinn? Hryðjuverk áformuð í Barselona, og á svo mörgum stöðum. Eftir 11. september hefur heimurinn verið á hraðri leið til andskotans. Er þess virði að fæða börn inn í þessa veröld okkar. Það er orðið svo flókið að ala upp börn í dag. Ég hef s.s. ekki samanburðin en ég held að það sé svo miklu flóknara að ala upp börn í dag, en þegar ég var að alast upp.
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/01/19/hrydjuverk_aformud_i_barcelona/
Og talandi um uppeldi, þá er ég strax farin að fela öðrum uppeldið á börnunum mínum. Hún Soffía Kristín, tæplega 4. mánaða dóttir mín, fékk sína fyrstu pössun í gærkvöld. Við hjónaleysin erum í þorrablótsnefnd og fórum á fund. Það dugði sko ekki minna en tvær barnapíur, ein á hvort barn, þær komu keyrandi frá Egilstöðum hingað í Brúarás í frekar vondu veðr bara til að passa fyrir mig. Takk Sjöfn og Kristín. Litlan sofnaði nú bara fljótlega en hjá eldri stelæpuni 3 ára var sko svaka partý.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2008 | 16:00
NÝTT BLOGG
Jæja, þá er maður farin að blogga. Maður reynir nú að fylgja straumnum. Ég gét reyndar ekki lofað færslu á hverjum degi þar sem ég á kall, tvo krakka og kött.
Ég er mamma með meiru og börnin mín skipta mig mestu máli. Stelpurnar mínar tvær, en þær eru 3 ára og tæplega 4 mánaða.
Á Héraði er ekki gott veður í dag. Skafrenningur. Ég er að bíða eftir að feðginin komi heim úr leiksskólanum. Svo er þorrablótsfundur í kvöld. Það duga hvorki meira né minna en tvær barnapíur, ein á hvorn krakka. En það er allt í lagi, það verður bara partý hjá stelpunum mínum í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar