Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
31.3.2008 | 13:27
Japanskur veruleiki
Svona er Japan í dag? Vonandi ekki. Að fólk skuli bara skilja börnin sín eftir og ekki einu sinni skilja eftir neinar upplýsingar um þau. Ekki einu sinni nafn. Ömurlegt!
15 börn skilin eftir í hitakassa til ættleiðingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 15:59
Ef ég væri
enþá heima hjá mömmu og pabba þá væri ég búin að öllu sem ég þarf að géra á netinu á þeim tíma sem það tekur að opna heimasíðuna hér. Já ég er s.s. komin heim í hææææææggggggguuuuuuu nettenginguna mína. Á meðan tölvan mín opnar mbl.is hér hefði ég sjálfsagt verið búin að tékka póstinn minn og blogga líka heima hjá mömmu. Hún er með ADSL, ekki ég. Og ég hef ekki einu sinni möguleika á því. FÚLT! En allavegana þá er páskafríið búið þetta árið, og við mæðgur komnar heim aftur. Við hefðum viljað géra meira og heimsækja fleiri. En þar sem við náðum okkur í heiftarlegt kvef, þá voru síðustu dagarnir bara teknir rólega. Skrifa meira seinna.
Lifið heil
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.3.2008 | 16:16
Veikara kynið hvað?
Afhverju er það, að kallar verða alltaf miklu vikari en konur. Þó að þeir fái sömu pestina. Þeir leggjast í rúmið og géta ekki hreift sig, en alltaf erum við á fótum og gætum bús og barna.
Pæling!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.3.2008 | 20:42
Þau stækka svo hratt
Í dag, páskadag, er snúllan mín pínulitla 6 mánaða. Samt fæddist hún bara í gær, finnst manni. Ég er búin í fæðingarorlofi en tími bara ekki að fara að vinna strax. Ég sé bara til. Stóra skellibjallan mín er líka orðin svaka stór. Mikið held ég að pabbi þeirra eigi eftir að sjá mikin mun á þeim, eftir þessa 10 daga sjálfsskipuðu útlegð okkar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.3.2008 | 19:33
Blessuð sértu sveitin mín.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.3.2008 | 10:50
Ekki besti talsmaðurinn
Æ ættu nú Merzedes Club ekki að láta einhvern annan sitja fyrir svorum en Egill vitgranna Gillzenegger. Það vita það allir að maðurinn hefur stærste egó ó landinu. En það vita líka margir að það meikar ekki alltaf mikin sens það sem hann segir. Og í rauninni meikar ekkért sens sem hann segir. Þar sem ég met hógværð mjög mikils, þá finnst mér þetta alger óþarfi.
Æ svo fer maðurinn eitthvað svo í taugarnar á mér. Eins og bandið er gott. Ég er enþá á því að Merzeders Club eigi sko fullt erindi í Eurovision. Við sendum þau bara næst.
Vilja vera nakin í myndbandinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2008 | 21:43
Á sunnlenskum slóðum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2008 | 18:19
Frábært band!
Datt í hug að misnota aðstöðu mína aðeins. 20% púðursykur er frábær hljómsveit, þar sem vill svo skemmtilega til að hann Siggi bróðir er söngvari og gítarleikari. Mér finnst þeir góðir. Vona að ykkur finnist það líka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.3.2008 | 18:07
Bandið hans Bubba, bensínverð og fleiri skandalar
Nú er ég í algeru nöldeurstuði. Það er bara allt þannig í dag. Jújú ég hef það fínt hér á hostel mamma. En hvert er þessi heimur á leiðinni?
Bandið hans Bubba
Mig langar að byrja á því að úthúða þeim þætti. Ég gét bara ekki orða bundist. Ég er sjálf ekki með Stöð 2 en sá hérna hjá honum bróður mínum upptöku af síðasta þætti. Og ég á bara ekki orð. Ég meina.... Er ekki búið að mjólka þessa belju aðeins of mikið? Mér finnst þessi þáttur ekkért annað en velútþynnt útgáfa af öllu öðru sem hefur verið gert áður. Bubbi er kokhraustur og veit alveg af sér, já og s.s. hinir dómararnir líka. Ég horði á Idolið á sínum tíma, og á X-Faxtor líka. En það er líka bara komið gott. Fínt, smá pása. Þó svo að allir þessir þættir hafi verið stæling á vinsælu erlendu sjónvarpsefni, þá er þessi þáttur lakastur. Skopstæling á Rockstar-þáttunum. Sem voru nú frekar spaugilegir útaf fyrir sig. Og ég gét alveg sagt ykkur það að eina ástæðan fyrir því að ég fylgdist með þeim þáttum á sýnum tíma, var hann Magni okkar allra. Nei þegar ég sé þætti eins og Bandið hans Bubba, þá er ég mjög fegin að ná ekki Stöð 2 á mínu heimili. Nú dylst engum að Ásbjörn Morteins er hæfileikaríkur maður. En hann á bara sjálfur að sjá um að flytja tónlistina en ekki að vera að tjá sig eitthvað í sjónvarpi. Ég held að maðurinn ætti þá bara frekar að blogga ef hann þarf að koma skoðunum sínum á framfæri.
Foreldrar eða ekki?
Og áfram held ég að skammast. Það fer nefnilega í mínar fínustu þegar ég sé foreldra sem eru ekki foreldrar. Ég vona að allir viti hvað ég er að tala um. Fólk sem er að eignast börn, en má svo ekki vera að því að ala þau upp. Jú jú, ég hef dóttur mína á Leikskóla, en ég reyni líka að verja tíma með henni á kvöldin og um helgar. Það var hjá mér ein kunningjakona mín núna áðan sem á tvo stráka. Hún mátti nú ekki vera að því að hugsa um eldri strákinn bara einan. Hafði hann á leikskóla allann daginn alla virka daga og sendi hann svo upp í sveit til mömmu sinnar um helgar. Maðurinn hennar var, og er, aldrei heima og ef hann er heima þá liggur hann upp í sóf og..... já og..... Þið skyljið hvað ég meina. En svo eignuðust þau annan strák. Og mamman, sem er engin mamma, sat hjá mer núna áðan í 5 tíma. Litla greyjið orðið svo pirrað og grét og grét. Hann gtrét sig hálf hásan lital skinnið. Og mamman pældi ekkért í því. ,,Það er ekkért að honum, hann er bara að láta vorkenna sér" var viðkvæðið hjá henni. En 3. mánaða barn grætur varla nema það sé eitthvað að. Það er mín trú allaveganna. Kannsaki er ég ekki foreldranna best en þetta finnst mér frekar klént. Ég reyni þó að hugsa um börnin mín.
Bévítans bensínverðið
Já og svo er það bensínverðið. Það hækkaði í dag, í hundrað, þúsundasta skiptið. Það kostar orðið um 160 krónur líterinn. Og það sem verst er að það þarf ekki að vera svona hátt. Íslensk stjórnvöld taka til sín 70 krónur af hverjum seldum lítra af bensíni. 160 - 70 = 90. 90!!! 70 krónur af 90 það er nú töluvert. Svo ég spyr: ,,Hvar eru stjórnvöld?" KOMMON!!!!
Það er ekki fyrir venjulegt fólk að lifa á Íslandi.
Eldsneytisverð hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.3.2008 | 10:03
MAMMA!!
Bara varð að henda þessu inn. Fyrir okkur mömmurnar er þetta alger snilld.
Eða hvað. Þessi frú er frábær
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 26.4.2011 Hvað er betra en páskar með teyndó?
- 23.4.2011 Í borgarstjórn - í ríkisstjórn...
- 21.4.2011 Gleðilegt sumar!
- 5.11.2010 Alveg er þetta dæmalaust!!
- 25.10.2010 Þetta er kommunistastjórnin í landinu!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar