Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hvað er þetta eiginlega?

tux_dell_laptopFá krakkagreyin ekki að hafa tölvurnar sínar í friði.  Þetta er ekki í fyrsta skipti, og ekki í síðasta skipti heldur.  Mín persónulega skoðun er sú að það eigi að koma upp myndavélakeri í bygginguni.  Ef að það er ekki þegar til staðar.  Það var það ekki þegar ég var í skólanum.  Hvað heimavistina varðar þá er það annað mál.  Jú jú auðvitað mætti hafa myndavélar á ganginum.  En við þurfum jú að virða friðhelgi einkalífs.  En auðvitað ætti það að vera þannig að það þyrfti ekkért að géra.  En því miður er heimurinn orðin eins og hann er.  Skyldi það einhverntíman skána? Segið þið mér.
mbl.is Tölvuþjófar á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það versnar og versnar...

Ekki lagast það...    veðrið á ég við. Við Soffía Kristín erum veðurtepptar heima hjá okkur. Og það eru engar ýkjur.   Það er allt snarvitlaust á Fagradalnum, björgunarsveitir að störfum og fjör.  Ég  veit það af eigin reynslu hvað dalurinn gétur verið leiðinlegur.  Lenti þar í blyndabyl einu sinni. 

Símon fór með skottuna yfir.  Í leikskólann.  Það eru allir að segja að segja að ég eigi bara að láta hana vera í leikskólanum hérna.  En það kémur samt eiginlega ekki til greina.  Í leikskólanum hér í Brúarási eru börn allt niður í 6 mánaða.  Pínulítil.  Og ekkért deildaskipt, öll börn saman.  Mín er búin að reyna það að vera í dagvistun með yngri börnum, og hún þoldi það ekki.  Þá var hún hjá dagmömmu á Egilstöðum, þar sem voru bara börn innan við eins árs.  Þá fór ég frá henni grátandi á hverjum morgni, en það hefur ekki komið fyrir nema einu sinni í leiksskólanum.  Hún er ánægð í þessum leikskóla, er að kynnsat krökkunum og nýtur sín vel.  Afhverju þá að vera að skipta.

En afhverju er það að það er alltaf verið að skipta sér af því hvernig maður elur upp börnin sín?  Það virðast allir hafa skoðun á því.  Jú jú kannski vill fólk vel, en það er ÉG sem veit hvað barninu MÍNU er fyrir bestu.  Allt sem ég aðhefst í sambandi við það miðast að því að það sé hamingjusamt.  Og ég held að fólk ætti bara frekar að líta í eigin barm, heldur en að vera endalaust að amast yfir því hvernig aðrir ala upp börnin sín, eða í þessu tilfelli hverja maður velur til að ala upp börnin sín, já og bara hvernig aðrir haga lífi sínu almennt.  Ég er bara ég og ég lifi eins og ég kýs.  Og ég kýs það sem ég tel best fyrir börnin mín.

Góðar stundir 


Ætlar þetta ekkért að fara að skána?

Þegar ég vaknaði í morgun var bylur.  Þriðja daginn í röð var bylur.  En í nótt var langversti bylur til þessa.  Ég beið bara eftir að þakið rifnaði af kofanum.  En svona án gríns þá var þessi bylur rosalegastur af þeim öllum.  Reyndar er veðrið orðið mjög skaplegt núna seinnipartinn og sennilega farið að hlýna eitthvað.  Þeir sögðu allavegana í útvarpinu að það væri komin tveggja stiga hiti á Egilstöðum.  Við erum nú ekkért svo mikið norðar.

Laugardagurinn var tekin bara rólega á þessu heimili.  Litlan var reyndar mjög lengi að sofna eftir hádegi. Þessi elska er svo mikil partygella að hún vill helst ekki missa af neinu.  Smile (hefur það frá mömmu sinni).  Eldri dóttirinn fór með pabba sínum í fjárhúsin.  FÍNN LAUGARDAGUR.

P.S. Auðvitað unnu okkar fulltrúar spurningarkeppnina í Útsvari í gær.  En það var s.s. vitað. Smile 


Talandi um að vera tæp.

Nú fór kellinginn alveg með það.  Drösla börnunum út í bíl i blyndbyl og ofankomu og keyra með þau í Egilsstaði í skygni sem var  - 2 metrar. Eldra barnið á leikskólann og litla með mömmu sinni í mömmuklúbb. 

Það er blyndabylur og ekkért ferðaveður, en ég fór samt af stað.  Ég þurfti jú að komast í minn mömmuklúbb.  Við erum farnar að hittast í gamla sláturhúsinu, sem nú heitir Vegahúsið.  Þar er búið að innrétta eins konar félagmiðstöð fyrir ungt fólk til að hittast.  Aðstaðan er mjög kósí, en í morgun var helst til kalt þarna.  Enda var litla dúllan mín ansi mikið farin að slappast undir það síðasta og við héldum að hún væri jafnvel komin með hita. Frown Þannig að mín fór og hrindi á heilsugæslustöðina og sagðist vilja tíma með hraði.  Ég fékk hann, en svo var barnið bara ekki það veikt.  Læknirinn sagði þetta bara kvef og mamman andaði léttar. Joyful

Við börðumst svo heim í jafnvel verra veðri en um morgunnin.  Ég hald að ég sé alveg búin að missa það að ana svona út í þetta veður.  En hvað á maður að géra.  Það er ALLTAF svona veður.  Jú ókey, það var kannski óvenju slæmt í dag, en....

Maður spyr sig hvenær í ókopunum það ætli að skána. Með vorinu?  Angry

 


Hollywood, Hollywood, Hollywodd.

Nú géta þeir farið að elska Bobby kallinn Fisher.  Hann er jú dauður upp á Íslandi.
mbl.is Hollywoodmynd um Fischer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er gaman að vera mamma!

Mér er mjög hugleikið mömmuhlutverkið í dag.  Var að lesa viðtalið við hana Áslaugu Ósk í vikunni, og fór að hugsa hvað maður hefði það nú gott.  Hún Sigga mín er þó BARA búin að vera með flensu. 

Var að setja inn myndir á síðuna hjá dúllunum mínum. Og uppfæra dálítið.  Það er t.d. komið eitt gullkorn í viðbót.  Notaði tækifærið og ,,vafraði" aðeins á barnaland.is og stal svolítlu sem mig langar að deila með öllum.

Það er um það að vera mamma. InLove

ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég

matinn á meðan hann var heitur, gekk

í hreinum fötum og gat spjallað í

rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég

farið seint í háttinn, sofið út um

helgar, greitt mér daglega og gengið

um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég

því aldrei fyrir mér hvort

pottaplönturnar á heimilinu

væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði

enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég

skýrt, hafði fullkomið vald yfir

líkama mínum og tilfinningum

og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei haldið grátandi barni föstu til

þess að læknir gæti sprautað það

eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei brostið í grát við að horfa í

tárvot augu og þekkti ekki þá

hamingjuflóðbylgju sem getur

sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég

aldrei langt fram á nótt og horfði á

barn sofa eða hélt á sofandi barni

vegna þess að ég tímdi ekki að leggja

það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki hvað ein lítil vera getur haft

mikil áhrif á líf manns og hversu

óendanlega sárt það er að geta ekki

kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki að ég gæti elskað svona heitt og

hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég

ekki þetta einstaka samband móður

við barn sitt og gleðina sem fylgir

því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég

ekki tíu sinnum á nóttu til þess að

aðgæta hvort allt væri ekki

örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég

ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,

sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir

því að eiga barn.

Þetta er hverju orði sannara. Smile


Veðraveturinn mikli.

Veturinn 1918 er þekktur sem frostaveturinn mikli.  Ætli veturinn 2008 verði ekki þekktur í framtíðinni sem veðraveturinn mikli?  Mér finnst að minnsta kosti að það sé alltaf vont veður.  Kannski er það bara ég, maður verður jú frekar var við veðrið þegar maður býr á berangri upp í sveit. En ég er allaveganna að verða búin að fá alveg nóg af honum Kára kunningja mínum. 

Ég fór með hana Siggu mína til læknis á laugardaginn, hún er víst með bronkítis og er komin á sýklalyf, svo hún fái ekki lungnabólgu upp úr þessu.  Hún er búin að vera hitalus í 2 daga, en sökum veðurs þá fór hún ekki í leikskólann í dag. Alveg tíbíst.  Vonandi kemmst hún á morgun. Sendi inn mynd af litla rokkaranum mínum sem frænka hennar tókCool LungA2007 ofl 007

Það versta er bara að nú er Soffía komin með kvef líka. Frown

En við vonum það besta. Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hugrenningar húsmóður í námi

Þórhildur Daðadóttir
Þórhildur Daðadóttir

Hér koma nokkrar hugrenningar húsmóður í námi. Svona er þetta bara. :)

Email: simonogtota@simnet.is

 

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tenglar

Vefsíðulistinn

Mjög góður listi yfir vefsíður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband